Þrír einstaklingar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir að þeir höfðu í hótunum við ökumann bifreiðar sem þeir voru farþegar í, meðal annars ógnuðu þeir honum með hnífi. Ekki kom til átaka og enginn slasaðist en allir gistu fangageymslur.
↧