Nokkuð rólegra var á skjálftasvæðinu út af Norðurlandi í gærkvöldi og í nótt. Síðasti skjálfti sem náði þremur stigum var rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi en fyrir utan hann hefur enginn skjálfti mælst stærri en þrjú stig síðan á fimmtudagsmorgun.
↧