Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram klukkan sjö í kvöld en gangan markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og er jafnframt síðasti Appelsínuguli dagurinn í ár. Gangan hefst í Alþingisgarðinum og gengið verður að Bíó Paradís við Hverfisgötu.
↧