Tilkynnt var um reyk frá íbúð á Rauðarárstíg síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var dælubíll sendur á staðinn og reykkafarar sendir inn. Þegar þangað var komið reyndist pottur vera á eldavél en íbúðin var mannlaus.
↧