Maðurinn sem slasaðist í hlíðum Helgafells í nágrenni Hafnarfjarðar í gær lést í nótt á Landspítalanum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins á þessari stundu en hann var rúmlega þrítugur.
↧