Karlmaður á níræðisaldri lést þegar bifreið hans lenti utan vegar og valt á Hafnarvegi fyrir utan Höfn á fjórða tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós en það er í rannsókn hjá lögreglu. Hálka var á þessum slóðum þegar slysið varð.
↧