Quantcast
Channel: Innlent
Browsing all 36550 articles
Browse latest View live

Strandsiglingar hefjist á ný

Stefnt er að því að hefja strandsiglingar umhverfis landið á ný, eftir margra ára hlé, að því er kom farm í svari Ögmundar Jónasssonar innanríkisráðherra við fyrirspurn á Alþingi í gær.

View Article


Slasaðist við BSÍ

Erlend ferðakona slasaðist þegar hún var að stíga út úr rútubíl við BSÍ á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hún var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar, sem ekki reyndust meiriháttar.

View Article


Tollurinn fann 35 þúsund steratöflur

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur gert upptækar rúmlega 35 þúsund steratöflur og rúmlega 500 ambúlur sem fundust í farangri farþega sem kom til landsins frá Berlín aðfararnótt 27. október...

View Article

Gestir á Sigur Rós sektaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði um hundrað ökumenn sem lögðu ólöglega við Laugardalshöllina síðasta sunnudag.

View Article

Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál

"Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu...

View Article


Tólf óku undir áhrifum - sú elsta var sextug

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Lögreglan stöðvaði átta þeirra í Reykjavík, tveir voru í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ.

View Article

Upprættu kannabisræktun í Hafnarfirði

Kannabisræktun var upprætt í húsi í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fann lögreglan 25 kannabisplöntur, auk græðlinga. Húsráðandi, karl um tvítugt, viðurkenndi aðild sína að málinu.

View Article

Bandaríkjamenn eignast fyrsta samkynhneigða þingmanninn

Bandaríkjamenn kusu í gær fyrsta samkynhneigða þingmanninn í öldungadeild. Það var demókratinn Tammy Baldwin sem var kosin fyrir Wisconsin. Hún hafði betur í baráttunni gegn repúblikananum Tommy Thompson.

View Article


Jón Gnarr: Til háborinnar skammar að brenna Oslóartréð

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, segir að það hafi verið til háborinnar skammar þegar mótmælendur í búsáhaldabyltingunni í janúar 2009, brenndu Oslóartréð.

View Article


Gagnrýnir Ríkisendurskoðanda harðlega vegna Eirar-málsins

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi Ríkisendurskoðanda harðlega á þingi í dag þar sem rætt var um störf þingsins.

View Article

Banaslys við Höfn

Karlmaður á níræðisaldri lést þegar bifreið hans lenti utan vegar og valt á Hafnarvegi fyrir utan Höfn á fjórða tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós en það er í rannsókn hjá lögreglu. Hálka var á...

View Article

Peningar eldri borgara fóru í fasteignafélag

Peningar sem áttu að fara í umönnun eldri borgara hjá Eir enduðu í rekstri fasteignafélagsins sem er að sligast undan skuldum.

View Article

Segir Steingrím baða sig í kinnapúðri Evrópubandalagsins

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen, fór mikinn í ræðupúlti á fjórða tímanum í dag þegar rætt var um afleiðingar veiðigjaldsins á Alþingi.

View Article


Jens snýr aftur - skattamálin enn til rannsóknar

Jens Kjartansson hefur snúið aftur til starfa sem yfirlæknir lýtalækningadeildar Landspítalans eftir tíu mánaða veikindaleyfi. Rannsókn á skattamálum Jens stendur enn yfir.

View Article

"Við vorum blekkt“

"Við vorum blekkt," segja aðstandendur eldri konu sem lagði aleiguna inn í Eir fyrir fáeinum mánuðum. Þau segja að stjórnendur hafa vel mátt vita hversu alvarleg staðan væri og segja að upplýsingum...

View Article


Áætlar fyrsta borpallinn við Jan Mayen árið 2017

Olíustofnun Noregs áætlar í nýrri skýrslu að verðmæti olíu- og gaslinda við Jan Mayen geti verið þrettán þúsund milljarðar króna og að hreinn hagnaður af vinnslunni geti numið allt að níu þúsund...

View Article

Kenndi blindri stúlku sjónhverfingar

Töframaðurinn Einar Mikael segist líklega hafa verið fyrstur í heimi til að kenna blindri manneskju sjónhverfingar.

View Article


Áfram truflanir á heitavatnsrennsli í Borgarfirði

Borgfirðingar verða áfram að sætta sig við truflanir á heitavatnsrennsli og að af og til kólni í húsum þeirra.

View Article

Fjórir teknir vegna fíkniefnaaksturs

Fjórir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, allir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.

View Article

Enn eykst vandi grásleppusjómanna

Grásleppustofninn við Noreg fer nú ört stækkandi og verða mun meiri veiðar heimilaðar á næstu vertíð en undanfarnar vertíðir.

View Article
Browsing all 36550 articles
Browse latest View live