Lögreglan á Selfossi þurfti að hafa afskipti af unglingapartíi í gærkvöldi en þar voru ungmenni, einkum tvær 13 til 14 ára stúlkur, að fikta við landadrykkju. Foreldrar mættu á staðinn og hefur barnaverndaryfirvöldum á Selfossi verið tilkynnt um málið.
↧