Vinir Elliðaárdals stofna samtök
Hátt í níutíu manns mættu á stofnfund Hollvinasamtaka Elliðaárdals í félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur í dalnum í fyrrakvöld.
View ArticleSjálfstæðisflokkurinn með 43%
Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt stuðnings ríflega 23 prósenta.
View ArticleÁkærður fyrir nauðgun og brennu
Ríkissaksóknari hefur ákært ríflega þrítugan mann frá Höfn í Hornafirði fyrir brennu og nauðgun. Brotin sem hann er ákærður fyrir voru framin með um árs millibili. Hann neitar allri sök.
View ArticleLíkamsárás við Bæjarins bestu
Ráðist var á mann við Bæjarins Bestu í Tryggvagötu rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Árásarmaðurinn var handtekinn og verður vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.
View ArticleUnga fólkið líklegra til úrskráningar
352 gengu úr Þjóðkirkjunni fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Þar af skráðu 166 sig í annað trúfélag en 186 skráðu sig utan trúfélaga. Í samantekt Þjóðskrár kemur fram að af þessum 352 einstaklingum eru 269...
View ArticleÓlöf: Sjálfstæðisflokkurinn á góðri siglingu
"Ég er auðvitað mjög ánægð með þessar niðurstöður sem þarna koma fram,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins.
View ArticleList án landamæra sett í vikunni
Það verður mikið um að vera víðast hvar um landið frá og með næsta miðvikudegi en þá verður hátíðin List án landamæra sett. Á dagskrá verða fjölmargir skapandi og skemmtilegir viðburðir.
View ArticleFormaðurinn tekinn undir áhrifum: "Algjört dómgreindarleysi"
Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, var tekinn fyrir ölvun við akstur í gærkvöldi. "Ég hafði verið í matarboði og drukkið hvítvín með matnum.
View ArticleGirðingar í góðu standi en hreindýr drepast úr hor
Bæjarstjóri Hornafjarðar segir girðingar í góðu lagi í landi Flateyjar í Mýrum. Því ættu engin hreindýr að flækjast í þeim og drepast.
View ArticleFlugstöðin er 25 ára
Tuttugu og fimm ár eru liðin í dag frá því Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli var vígð og var afmælinu fagnað í gær.
View ArticleLinda: Háværustu þrumur sem ég hef heyrt
Þær voru yfirþyrmandi þrumurnar og eldingarnar sem dundu yfir Tælandi eftir að jarðskjálftinn reið yfir í Indónesíu í síðustu viku. Skjálftinn var 8,7 stig á Richterskvarða og síðar varð annar skjálfti...
View ArticleGagnrýna borgaryfirvöld fyrir að samþykkja frestun framkvæmda
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna harðlega að meirihluti borgarstjórnar ætli að undirrita samkomulag við ríkisvaldið sem felur í sér frestun mikilvægra vegaframkvæmda í Reykjavík.
View ArticleHægt að sjöfalda lífræna framleiðslu
Raunhæft er að stefna að sjöföldun lífrænnar framleiðslu á Íslandi fyrir lok þessa áratugar. Þetta segir formaður þingnefndar um eflingu græna hagkerfisins.
View ArticleJón Kaldal yfirgefur Fréttatímann
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, hefur selt hlut sinn í blaðinu. Kaupendur eru aðrir hluthafar. Jón hefur í kjölfar þessara viðskipta látið af starfi ritstjóra.
View ArticleVarla meirihluti án Sjálfstæðisflokksins
Eini möguleikinn til að mynda ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins er ríkisstjórn allra hinna flokkanna fimm sem ná sæti á Alþingi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.
View ArticleHafa þegar hjálpað nær 40.000 börnum
Hjálparstarf UNICEF á Sahel-svæðinu í Afríku er komið í fullan gang. Tugir þúsunda barna hafa fengið meðferð vegna vannæringar. Söfnun UNICEF hefur gengið vel á Íslandi og um fjórtán milljónir króna...
View ArticleDýrasta bókin á markaðnum
Hátíðarútgáfa bókarinnar Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson sem frumsýnd var á Benediktsmessu 21. mars er dýrasta bókin á íslenskum bókamarkaði um þessar mundir.
View ArticleHefur beðið í tvo mánuði eftir umræðu um Evrópusambandsviðræður
Jón Bjarnason, þingmaður VG, hefur beðið í tæpa tvo mánuði eftir því að fá sérstaka umræðu á Alþingi um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Jón segir í samtali við Vísi að hann hafi fyrst farið...
View ArticleSamskiptin við ESB rædd með utanríkisráðherra
Utanríkismálanefnd mun hitta Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fljótlega til að fara yfir pólitísk samskipti við Evrópusambandið.
View Article