Mikil gleði var í miðborg Reykjavíkur í dag á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, 17. júní. Dásamlegt veður var úti og nutu borgarbúar þess að vera úti í veðurblíðunni. Krakkarnir fóru í leiki, fengu sleikjó og nammi enda ekki annað hægt á degi sem þessum.
↧